Fyrirspurnir

Um Laufás

Laufás er byggingarfyrirtæki sem sérhæfir sig fullfrágengnum í timbureiningahúsum.  Fyrirtækið framleiðir byggingar úr forsmíðuðum byggingahlutum (e. prefabricated modular buildings) sem samsett eru af samstarfsaðilum undir viðurkenndum gæðakerfum.  Allar byggingar Laufás byggja alfarið á íslenskri hönnun.  Við smíðina er leitast við að nýta sem mest umhverfisvottaðar byggingarvörur, lágmarka neikvæð umhverfisáhrif og sóun.

Af hverju timburhús?

Einangrunargildi í timbri er hátt.  Gler leiðir varma 23 sinnum hraðar en viður, stál 1.650 sinnum hraðar og ál heilum 7.000 sinnum hraðar.

Kolefnissporlaust.  Timbur gleypir og geymir CO2 í andrúmsloftinu.  Timbur, unnið úr sjálfbærum nytjaskógum, er með jákvætt kolefnissport þar sem fleiri trjám er plantað en þau sem unnið er úr.  FSC skógarstjórnunarvottun staðfestir að skóginum sé stjórnað á þann hátt að líffræðilegur fjölbreytileiki varðveitist og að ekki sé gengið á nytjaskóga.

Sjáandi staðreynd: 0,8 tonn af kolefnislosun sparast fyrir hvern rúmmetra af timbri sem notaður er í byggingariðnaði.  Hús með 20 rúmmetrum af timbri sparar þannig 16 tonn í kolefni.  Í samhengi þá er gróft mat á kolefnisspori þess að aka u.þ.b. 90.000 km um einnig 16 tonn, en með öfugum formerkjum.

Í samanburði við annað algengt byggingarefni er timbur í sérflokki þegar litið er til umhverfisáhrifa.

 

Þegar hús er byggð með forsmíðuðum byggingahlutum fer smíðin fram við bestu aðstæður innanhúss.  Engin hætta er á að raki komist í einangrun eða annað byggingarefni við smíðina og einfaldara verður að tryggja stöðug gæði.

Markmið Laufás er að bjóða örugga gæðavöru á góðu verði.  Til að tryggja gæði framleiðslunnar hafa fjölmargri framleiðendur forsmíðaðra byggingarhluta verið metnir og framleiðslutæki og gæðakerfi verið tekin út.  Þannig hafa samstarfsaðilar Laufás erlendis verið vandlega valdir með gæði og áreiðanleika að leiðarljósi.

Stefna Laufás

Stefna Laufás er að vera fyrsti valkostur í timburhúsum og að njóta trausts sem framleiðandi á vistlegu og öruggu húsnæði.
Laufás, ásamt samstarfsaðilum, hefur sett sér stefnu í gæða- og öryggismálum og stefnu varðandi samfélagslega ábyrgð.

Viðskiptavinir og hagsmunaaðilar

Laufás hefur að leiðarljósi að bjóða umhverfisvænar, öruggar og hagkvæmar lausnir fyrir viðskiptavini.

Hafðu samband

5 + 5 =